Breiðilækur
14.01.2012 15:01:39 / Breiðilækur

Loksins blogg

Góðan daginn

Það er betra að skrifa eitthvað hér inn svo síðan gefi ekki alveg upp öndina, enda kominn dágóður tími síðan síðast. Margt hefur gerst á þessum tíma og ætla ég að fara yfir það helsta og byrja á kúnum.

Í heildina hafa farið átta kýr frá því í vor og fóru þrjár þeirra í byrjun maí og það voru þær Slóð Stígsdóttir, Hviða Náttfaradóttir og Gára Bifursdóttir og var júgurbólga aðalorsök hjá þeim. Í byrjun desember fóru síðan Glæða Villingsdóttir, Hersing Hersisdóttir, Kilja Júdasardóttir, Gjörð Snotradóttir og Völuspá Völustakksdóttir og voru ýmsar ástæður fyrir þeim förgunum. Einnig fóru þá sjö uxar, allir um tveggja ára aldurinn.

Eftir sex mánaða hvíld frá burðum í fjósinu fóru kýrnar að bera í byrjun september og hafa 24 borið síðan þá og ólíkt síðustu tveimur árum fæðast mun fleiri naut núna, eða 19 naut á móti 5 kvígum en einungis 2 kvígur af þessum 5 settar á.
Eftirfarandi kýr báru frá 5. sept til 11. sept.
Fyrst bar Leista 163 Þverteinsdóttir svörtum nautkálfi undan Silfra 09004.
Síðan bar Góa 244 Þrasadóttir rauðskjöldóttum nautkálfi undan heimanautinu Úlfi 245.
Flaska 221 Laskadóttir bar rauðyrjóttum nautkálfi undan Snúð 08048.
Týra 222 Náttfaradóttir bar brandsokkóttum nautkálfi undan Glæði 02001.
Mús 243 Mikkadóttir bar bröndóttum nautkálfi undan Bamba 08049.
Gata 186 Stígsdóttir bar dauðum 50 kg risanautkálfi undan Jaka 04044 og er þetta þriðji kálfurinn hennar í röð sem fæðist dauður og er þetta annar kálfurinn sem er svona risastór og því er greinilega eitthvað að hjá henni.
Þessar báru svo frá 18.-23. október:
Spyrna 247 Skurðsdóttir bar dauðri kvígu undan heimanautinu Úlfi 245.
Plata 210 Grímsdóttir (hn) bar rauðum nautkálfi, limousineblendingi, undan Ljóma 95451.
Náttúra 227 Náttfaradóttir bar svarthuppóttum, sokkóttum nautkálfi undan Silfra 09004.
Í nóvember báru 11:
Nía 251 Kvistsdóttir (hn) bar rauðum nautkálfi undan Lykli 02003.
Mjólka 249 Rjómadóttir bar rauðum nautkálfi undan Ás 02048.
Bót 220 Bútsdóttir bar rauðum nautkálfi, gallowayblendingi, undan Frakki 87696.
Hetja 252 Kappadóttir bar bröndóttri kvígu undan Silfra 09004 og var þetta fyrsta ásetta kvígan frá því í mars og fékk hún nafnið Sæla 305.
Hátign 188 Soldánsdóttir bar nautkálfi undan Polli 08054 og drapst hann nokkrum klst eftir fæðingu.
Hetta 238 Kambsdóttir bar dauðum nautkálfi undan Lykli 02003.
Rita 204 Stílsdóttir bar rauðum nautkálfi undan Glæði 02001 og fékk hann nafnið Ritari 306 og er nú farinn á nautastöðina.
Vog 256 Skósdóttir (hn) bar rauðbröndóttum nautkálfi undan Bamba 08049
Alfa 253 Alfonsardóttir bar rauðleistóttum nautkálfi undan Jökli 09001.
Húfa 116 Túnadóttir bar svartkrossóttum nautkálfi, angusblendingi, undan Arði 95402.
Hjartalína 232 Úðadóttir bar bröndóttum nautkálfi undan Góa 08037.
Í desember báru svo fjórar:
Spretta 230 Sporadóttir (hn) bar rauðum nautkálfi, limousineblendingi, undan Ljúfi 95450.
Blesa 213 Þollsdóttir bar rauðbröndóttri kvígu, gallowayblendingi, undan Frakki 87696.
Þúfa 258 Hólsdóttir bar agnarsmárri rauðgrönóttri kvígu undan Rauðgrana 09034 á jóladag og er nafnið á henni ekki alveg fastákveðið en hún verður númer 313.
Lífgjöf 233 Sporadóttir (hn) bar á gamlársdag risastórri rauðri kvígu, limousineblendingi, undan Ljúfi 95450. Skondið er að sjá hana og grönóttu kvíguna saman því stærðarmunurinn er ótrúlegur. Ég þyrfti að setj inn mynd af þeim næst þegar ég fer heim.

Eins og ég nefndi áður hafa fæðst mun fleiri kvígur síðustu ár og því lét ég sæða nokkrar kýr með holdanautum í fyrra til að fjöldi ásettri kvíga yrði ekki jafnmikill en ekki gat maður búist við að svona mikill fjöldi nautkálfa myndi fæðast og einunigs hægt að setja á tvær kvígur því hinar tvær sem fæddust lifandi eru holdablendingar. En það er vonandi að það fari að fæðast fleiri kvígur, en það eiga eftir að bera sjö kýr og kvígur fram í maí.

Af þessum sem eru bornar eru tíu fyrsta kálfs kvígur og hef ég með smá umsögn um þær:
Hetta 238 Kambsdóttir 06022 er að mjólka sæmilega en er þó enginn framtíðargripur því hún er með spenagalla sem lýsir sér þannig að það virðist vera speni inngróinn í öðrum spena því það er annað spenaop ofarlega á öðrum afturspenanum sem sprautast úr mjólk og hefur sér mjólkurgang. En annars er júgur og spenagerð sæmileg sem og skap, en mjaltir mættu vera betri og er meðalflæði 1,5 l/min.
Mús 243 Mikkadóttir 06042 ætlar bara að verða ágætis kýr og langtum betri en móðir sín og mjólkar bara nokkuð vel. Skapið er mjög gott en hún mætti mjólkast hraðar og er flæðið bara 1,5 l/min. Júgur og spenagerð með ágætum.
Góa 244 Þrasadóttir 98052 er að mjólka minnst af kvígunum eða rétt 13-14 l og er farin að fitna strax og er því alveg eins og móðir sín hvað þetta varðar. Auk þess er hún leiðinlega seinmjalta og verður því ekki haldið aftur. Skapið er gott og hún er háfætt með glæsilega júgurgerð. Spenagerð góð en hún er með stóran millispena sem skemmir fyrir.
Spyrna 247 Skurðsdóttir 02012 er að mjólka mjög vel eða um 22-23 l á dag. Júgurgerð ágæt og spenagerð góð fyrir utan að spenar eru frekar gleitt settir líkt og á móður hennar. Skapið er í lagi og mjaltir mjög góðar og meðalflæði 2,3 l/min.
Mjólka 249 Rjómadóttir 07017 er að mjólka mjög vel eða um 22 l á dag. Hún er með mjög góða júgur og spenagerð sem og mjaltir en meðalflæðið er 2,3 l/min. Skapið er einnig sæmilegt. Hún er mikið betri en móðir sín að öllu leyti.
Nía 251 Kvistsdóttir 208 (hn undan Þvertein 97032) er mjög góð og þægileg kýr eins og móðirin, hún Rita 204. Hún mjólkar vel og er með góða júgur og spenagerð og er mjög skapgóð. Mjaltir eru góðar en mjaltaflæðið þó bara 1,7 l/min og mætti því vera hraðara.
Hetja 252 Kappadóttir 01031 er sömuleiðis mjög góð kýr og þægileg. Mjólkar vel og er háfætt með glæsilega júgur og spenagerð. Mjaltir einnig mjög góðar og meðalflæði 2,3 l/min, en er að vísu aðeins lek.
Alfa 253 Alfonsardóttir 02008 er gífurlega mjólkurlagin eins og móðir sín Leista 163 og hefur mest farið í 27 l á dag. Hún er með góða júgur og spenagerð og mjaltaflæði er ágætt eða 2 l/min en er aðeins mismjalta. Hún er hins vegar afar leiðinleg í skapinu og lætur mjög illa þegar hún er þvegin og þegar er að klárast úr henni.
Vog 256 Skósdóttir 211 (hn undan Umba 98036) er ekki framtíðargripur. Það vantar ekki að hún geti mjólkað heldur er hún með mjög svo gallaða júgur- og spenagerð auk þess sem það er aðeins skap í henni. Hún bar með mikla júgurbólgu en er í lagi hvað það varðar nú. Mjaltir frekar slæmar, mismjalta og meðalflæði 1,6 l/min.
Þúfa 258 Hólsdóttir 07037 er ágætis kýr en það kemur betur í ljós þegar lengra er liðið frá burði. Hún er lítil en hefur þó verið að mjólka 22 l á dag og meðalflæðið er um 2 l/min. Júgurgerð góð og spenar stuttir og mjög þykkir. Skapið einnig gott.

Ég er búinn að uppfæra ætternisupplýsingar á öllum gripum á bænum auk þess sem ég setti inn myndir af kúnum frá því í sumar fyrir löngu.

En svo ég snúi mér núna að kindunum þá var síðasta ár ekki  gott ár í „sauðfjárbúskapnum“. Sauðburður gekk hörmulega og voru sex lömb af átján dauð og lóga þurfti tveimur kindum vegna burðarerfiðleika, þar á meðal Myrká hinni ferhyrndu. Í sumar fékk svo gemlingur sem var í uppáhaldi hjá mér júgurbólgu og eyðilagðist júgrað. Svo í byrjun nóvember drapst ærin Kyssifrú af ókunnum ástæðum en hún var geld í vor. Þannig að ekki er þetta gæfuleg. Sauðburður stóð frekar lengi yfir því fyrsta bar í lok janúar og seinasta bar svo ekki fyrr en í byrjun júlí, en þær hafa greinilega viljað dreifa álaginu enda telur stofninn 11 kindur.

Meðallífþungi lambanna var hærri en í fyrra og vóg þar inn í að janúarlambið Jana var 58 kg. Settar voru á fjórar gimbrar: Jana, grámógolsótt gimbur sem fékk nafnið Frigg, grámórauð gimbur sem heitir Jörð og móeyglótt ferhyrnd gimbur sem heitir Rúpía. Ég setti inn nokkrar myndir af kindunum frá því í haust inn í albúm Kindur haust 2011.
Einnig setti ég inn myndir sem ég tók ofan af fjalli þegar ég skrapp þangað í sumar og má finna þær í myndasafni.

Núna er ég á Hvanneyri í skóla og byrjaði í haust í búvísindum sem er þriggja ára háskólanám og gengur það bara vel.
 
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili enda er þetta orðið heldur langt, en svona er þetta þegar maður nennir ekki að skrifa neitt í langan tíma.

Kveðja, Hafþór



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2011 23:17:04 / Breiðilækur

Ýmislegt


Fyrir nokkru síðan komu dómarnir af kvígunum 6 sem ráðunautarnir skoðuðu í haust inn í Huppu. Hjartalína 232 Úðadóttir 01004 varð hæst með 87 stig enda er hún glæsileg kýr, en það er bara skapið í henni sem getur verið leiðinlegt stundum. Þar á eftir komu Flaska 221 Laskadóttir 00010 með 85 stig, svo Lífgjöf 233 Sporadóttir (hn undan Meitli 98008 ) með 84 stig, Bót 220 Bútsdóttir 00043 með 82 stig og Gára 225 Bifursdóttir 05041 með 81 stig. Langlægst varð svo Týra 222 Náttfaradóttir 00035 með 76 stig, en mér finnst þessi dómur vera full lágur miðað við að hún hefur enga áberandi útlitsgalla. Og t.d. hefur hún sérlega góða spenagerð en fékk samt bara 15 stig þar og jafn mörg stig fékk hún fyrir júgurgerðina sem er þó betri en á sumum kvígum sem fengu hærri dóma. En svona getur þetta verið stundum.

Það hefur fækkað um tvo gripi í fjósinu en í mars fóru Glóra 196 Þrumaradóttir og heimanautið Úlfur 245 Lykilsson. Glóra fór vegna júgurbólgu en hún hafði verið með tvo ónýta spena frá því hún bar í haust. Úlfur 245 var orðinn 23 mánaða og var gott að losna við hann enda var hann orðinn mjög skapillur og svo slæddi hann heyinu mikið. Þá eru eftir 75 nautgripir á bænum.

Búið er að láta 19 kálfa út og eru þeir nú í bogahýsinu niðri við sjó. Þetta eru 11 kvígur og 8 uxar. Allar kvígurnar utan eina áttu að vera fengnar en eftir að þær voru komnar út sást gangur á einni og hún mun því ekki bera. Hinar kvígurnar eru vonandi allar fengnar og ef svo er koma sjö þeirra með kálfa undan sæðinganautum og tvær með undan heimanauti.


Núna er gimbrin sem Kóróna bar í janúar, hún Jana, þriggja mánaða og hefur hún stækkað helling og er algjör bolti í dag, enda hefur hún fengið nóg að drekka svona ein og svo er hún dugleg að éta heyið. Ég vigtaði hana þegar hún var tveggja mánaða og einnar viku gömul og reyndist hún þá vera orðin 31 kg og bjóst ég ekki við að hún væri orðin svona þung en það er greinilegt að hún hefur haft það gott, enda þyngst um u.þ.b. 450 gr á dag fram að þeim tíma. Myndin að ofan er tekin núna í lok apríl og er af þeim mæðgum þar sem þær njóta veðurblíðunnar úti. Næsta kind á svo að bera eftir tæpar tvær vikur.

En ég læt þetta duga í bili

Hafþór


» 29 hafa sagt sína skoðun

02.03.2011 23:48:25 / Breiðilækur

Seinasti burðurinn í bili


Það hafa þrjár kýr borið frá því ég skrifaði seinast inn. Framtíð 224 Framadóttir bar 8. febrúar rauðskjöldóttri kvígu undan Skandal 03034 og er hún númer 292. Fyrsta kálfs kvígan Völuspá 241 Völustakksdóttir bar tveimur dögum síðar dökkkolskjöldóttum nautkálfi undan heimanautinu Bala 235 Halasyni og er sá númer 293. Í gær bar svo Jörð 198 Ingjaldsdóttir og átti þessa fallegu rauðskjöldóttu kvígu sem er á myndinni fyrir neðan. Kvígan heitir Dúlla 294 og er undan Krúsa 08014. Við bjuggumst ekki við að þessi kálfur kæmi lifandi því þegar kýrin var að bera kom meirihluti hildanna (fylgjunnar) á undan kálfinum auk þess sem á þeim tímapunkti voru hríðarnar hættar. Kálfurinn var þá bara tjakkaður út og var sem betur fer lifandi. Í fyrra komu hildirnar einnig að hluta til á undan og náðist sá kálfur lifandi, en fyrsti kálfurinn hennar drapst í fæðingu og þá voru líka einhver svipuð vandræði.



Jörð er síðasta kýrin sem ber í bili og næsta sem á að bera á ekki að bera fyrr en eftir sex mánuði eða í byrjun september. Þá á Mús 243 Mikkadóttir að bera sínum fyrsta kálfi undan Bamba 08049. Þannig að nú verður gott frí frá burðum næstu mánuðina. Frá miðjum ágúst hafa 27 kýr borið og hafa fæðst 19 kvígur á móti 8 nautum. Þrír kálfar hafa fæðst dauðir, tvö naut og kvíga. Þetta er annað árið í röð sem kvígur fæðast í miklum meirihluta og núna eru því til 37 kvígur í uppeldi á bænum frá 0 til 27 mánaða aldurs. Þetta er full margar kvígur til endurnýjunar í bústofninum og því þarf líklegast að selja svona 10 kvígur hið minnsta af þessum 37 en maður veit svosem ekki hvort það er einhver eftirspurn eftir kvígum nú á tímum. En þetta verður að koma betur í ljós.

Ég setti inn myndir af öllum kálfunum sem hafa fæðst í möppuna kálfar haust '10 - vor '11.

En ég læt þetta duga núna.

Hafþór


» 23 hafa sagt sína skoðun

31.01.2011 22:24:32 / Breiðilækur

Sauðburður á þorranum


Liðna nótt, þann 31. janúar, gerðist sá óvænti og ánægjulegi atburður að ærin Kóróna 07-002 bar einni svartri gimbur. Kóróna hefur því fengið eitthvað í kringum 10. september en á þeim tíma voru kindurnar komnar heim á tún og því er Garpur 09-257 eini mögulegi faðir lambsins og þetta er því óvænt síðasta lamb hans, en honum var slátrað í haust. Þess má geta að Kóróna bar tveimur lömbum í endann maí síðasta vor og gekk með bæði lömbin alveg fram í október og voru bæði lömbin yfir meðallagi í fallþunga.
Á fengitímanum skrái ég alltaf niður hvenær kindurnar ganga, svo ég viti nokkurnveginn hvenær þær beri að vori, en á fengitímanum núna sá ég allar kindurnar ganga nema Kórónu og hélt ég því að mér hlyti að hafa yfirsést þegar hún gekk. Í gærdag tók ég svo eftir því að hrúturinn var farinn að elta hana í garðanum og hugsaði ég með mér að hún væri fyrst að byrja að ganga núna en hugsaði svo ekkert meira um það. Þegar ég fór svo út í hús um miðnætti eins og venjulega var hrúturinn enn á eftir henni og hún eitthvað skrítin. Svo sá ég aftan á hana og tók eftir hvað hún var orðin þrútin og þá rann þetta upp fyrir mér. Ég fór ofan í garðann og sá að það var komið slím frá henni og júgrað var hart og ljóst að hún væri að fara að bera. Ég rak kindurnar yfir í hinn garðann og lokaði svo hún fengi næði og beið svo úti til klukkan tvö í nótt en þá dró ég lambið út en lappirnar og hausinn komu á sama tíma. Lambið var sprækt og var staðið upp á örskotsstundu og farið á spena. Það er frekar skrítið að vaka svona yfir sauðburði í janúar. En það er gaman að þessu! Myndirnar eru af þeim mæðgum.




Nokkrar kýr hafa borið. Glæða 149 Villingsdóttir bar 21. desember rauðri kvígu undan Tópas 03027 og heitir sú Gláma 287. Hviða 215 Náttfaradóttir bar í 28. desember brandsokkóttu nauti undan Kletti 08030 og heitir sá Vindur 288. Hrísla 239 Karradóttir (1. kálfs kvíga) bar 6. janúar rauðhuppóttri kvígu undan heimanautinu Úlfi 245 Lykilssyni og er sú númer 289. Það fór ekki vel fyrir Hríslu því í morgunmjöltunum daginn eftir að hún bar var hún komin með þessa heiftarlegu bráðajúgurbólgu í vinstri júgurhlutana og var því sett í hana, en um kvöldið var byrjað að myndast drep í júgranu og hún orðin slöpp og stóð ekki upp. Daginn eftir lóguðum við henni enda júgrað að verða svart og hún hafði enga krafta til að standa upp. Hrísla var stór og stæðileg kvíga, með góða júgur og spenagerð og mjög skapgóð í umgengni. Kilja 218 Júdasardóttir bar 21. janúar og átti rauðhuppótta kvígu undan Hegra 03014 og heitir hún Skrudda 290. Fyrir mjaltir áðan bar svo Hersing 214 Hersisdóttir og átti rauðan nautkálf undan heimanautinu Úlfi 245 og verður sá númer 291.

Í dag hefur því fjölgað um tvennt í útihúsunum og er þessi dagur greinilega vinsæll hjá búfénu hér því á sama degi í fyrra báru tvær kýr.

Kýrnar eru að mjólka svona sæmilega en þó mættu fullorðnu kýrnar mjólka meira því þær eru flestar að mjólka rétt um 23-24 l á dag. Húfa 116 Túnadóttir er að mjólka mest af þeim fullorðnu eða um 27 l á dag og af kvígunum eru þær Náttúra 227 Náttfaradóttir og Spretta 230 Sporadóttir (hn) að mjólka mest eða rúmlega 21 l á dag.

Fyrir rúmum tveimur vikum var klárað að útbúa kálfastíurnar í hlöðunni og voru kálfarnir þá reknir inn. Í flórnum eru plastrimlar og við vegginn eru legubásar án milligerða svo kálfarnir geti lagst. Nú er komin tveggja vikna reynsla á þetta og eru kálfarnir bara nokkuð ánægðir þarna. Þeir liggja reyndar þvers og kruss á básunum og óhreinka sig því nokkuð en það hefur reyndar lagast undanfarna daga. Ég setti inn myndir af stíunni og það er besta að skoða þær til að sjá betur hvernig þetta er.

En þetta er komið nóg í bili.

kveðja, Hafþór


» 18 hafa sagt sína skoðun

20.12.2010 23:33:00 / Breiðilækur

Útskrift


Jæja, þá er ég útskrifaður stúdent frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga og dúxaði ég með einkunnina 9,4. Útskriftin var á föstudaginn síðasta og útskrifuðust 12 nemendur frá FSN. Við vorum tvö sem útskrifuðumst úr framhaldsdeild FSN á Patreksfirði og fyrst til þess og það er ánægjulegt að vita að ég hafi verið fyrstur til að útskrifast þaðan. Ég fékk í heildina níu bækur sem verðlaun fyrir góðan árangur í skólanum. Fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk ég bókina Íslenskar eldstöðvar. Og við sem útskrifuðumst úr framhaldsdeildinni fengum hvort fyrir sig bókina Vestfirðir. Svo fékk ég bækur frá þýska sendiráðinu og því danska fyrir góðan árangur í þýsku og dönsku. Ég fékk tvær bækur fyrir góðan árangur í stærðfræði, Alheiminn frá Arion banka og Síðustu setningu Fermats frá Hinu íslenzka bókmenntafélagi. Fyrir góðan árangur í raungreinum fékk ég bókina Og ég skal hreyfa jörðina. Fyrir góðan árangur í íslensku fékk ég Orðaheim og fyrir góðan árangur í sögu fékk ég bókina Sögustaðir. Þannig að þó að ég sé búinn í skólanum þá verður nóg að gera í því að lesa allar þessar bækur í vetur.
Á myndinni fyrir neðan erum við sem fengum verðlaun fyrir góðan árangur í FSN; Guðrún Erla Ólafsdóttir, Hafþór Finnbogason og Fanney Sumarliðadóttir.



Eftir útskriftina voru kaffiveitingar í boði skólans og eftir það var keyrt áleiðis heim. Það var nú ekki hið besta ferðaveður á leiðinni, bæði frekar mikil snjókoma og því blint og mjög hvasst og hélst snjórinn því ekki á veginum. Ferðin gekk vel og vorum við komin heim um hálf tíu um kvöldið, en ég fór yfir með Baldri kvöldið áður og svo var gist í bústað þrjá kílómetra frá Grundarfirði.

Ég kláraði skólann á sjö önnum. Fyrstu fjórar annirnar var ég í alfarið í framhaldsdeildinni á Patró og fór þangað á hverjum degi og svo einu sinni í mánuði í Grundarfjörð. En seinustu þrjár annirnar hef ég tekið námið í dreifnámi og þá hef ég lært allt hér heima, þökk sé betri nettengingu, en farið svo á Patró til að taka próf, kynna verkefni gegnum fjarfundabúnað yfir í Grundarfjörð og í íþróttir. Þar sem ég kláraði námið einni önn fyrr ætla ég að taka mér frí frá námi núna eftir áramót en svo er stefnan sett á Hvanneyri næsta haust í skóla.

En svo ég komi aðeins að búskapnum þá hafa tvær kýr borið. Blesa 213 Þollsdóttir bar í lok nóvember brandhuppóttum nautkálfi undan Aðli 02039 og þann 18. desember bar Húfa 116 Túnadóttir dauðum nautkálfi undan Flekk 08029 en hann kom afturábak og uppíloft alveg eins og kálfurinn undan henni í fyrra sem var sömuleiðis dauður. Það hefur verið leiðinda súrdoðavesen í fjósinu síðustu mánuði og flestar sem hafa borið hafa fengið súrdoða. Úr fjárhúsunum er það að frétta að ég hleypti hrútnum í kindurnar í gær og gengu þá tvær kindur. Undanfarna daga höfum við Kristján verið að einangra hlöðuþakið eftir að í því greindist alvarlegur kuldi. Var því brugðið á það ráð að einangra það með steinull, til að hefta útbreiðslu kuldans. Næsta mál á dagskrá er svo að klára kálfastíuna sem verið er að útbúa í hlöðunni og taka á í notkun sem allra fyrst.

Þar sem þetta verður að öllum líkindum síðasta blogg ársins vil ég óska lesendum síðunnar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Hafþór Finnbogason


» 25 hafa sagt sína skoðun

20.11.2010 22:52:11 / Breiðilækur

Blogg


Það er víst kominn tími til að skrifa hér inn.
Best að byrja á kúnum. Það hafa borið fimm kýr síðan síðast og af þeim eru fjórar fyrsta kálfs kvígur. Og enn eru kvígur í miklum meirihluta.
Plata 210 Grímsdóttir 06257 bar 27. október og átti rauðan nautkálf undan Legi 07047 og fékk hann nafnið Platon 282.
Hjartalína 232 Úðadóttir 01004 bar 6. nóvember og átti dauðan kvígukálf, brandhuppóttan að lit, undan heimanautinu Bala 235 Halasyni 06014.
Náttúra 227 Náttfaradóttir 00035 bar 9. nóvember og átti dökkkolótta, sokkótta kvígu undan Bala 235 og er hún númer 283.
Spretta 230 Sporadóttir 06275 bar 12. nóvember og átti svarta kvígu undan Bala 235 og er sú númer 284.
Gjörð 236 Snotradóttir 01027 var svo nýborin kl.6 í dag þegar ég gáði út og átti hún dökkkolótta kvígu undan heimanautinu Guma 228 Laskasyni 00010 og verður hún númer 285.

Það hefur gengið nokkuð vel hjá kvígunum að bera en þó virðist það fara eftir því hjá hvaða nauti þær voru. Þær þrjár sem áttu kálf undan Guma 228 hefur gengið vel að bera en þær sem voru hjá Bala 235 gengur verr. Fyrsta bar að vísu sjálf en hinum þremur hefur gengið illa. Kálfurinn hjá Hjartalínu drapst í fæðingu því hann var svo fastur. Eins var það hjá Náttúru og Sprettu en þeir náðust lifandi. Oftast er ekkert mál eftir að hausinn á kálfinum er kominn út en þessir kálfar undan Bala eru svo breiðir um skrokkinn þannig að þeir eru nærri alveg fastir alla leið. Og kálfarnir undan Náttúru og Sprettu hefðu aldrei náðst lifandi ef burðartjakkurinn hefði ekki verið notaður. Hann var að vísu einnig notaður þegar Hjartalína bar en sá kálfur var svo svakalega fastur, sérstaklega um mjaðmirnar og lifði því ekki.

Svo var haldinn nautgriparæktarfundur fyrir um 10 dögum sem Magnús B., Friðrik og Lena sáu um. Þar fengum við tvö verðlaun, önnur fyrir Busku 133 vegna 89 stiga byggingardóms og hin fyrir Strompu 172 einnig vegna 89 stiga byggingardóms. Báðar voru þær undan heimanautum. Sama dag komu þessir ráðunautar í fjósið og skoðuðu þær 6 kvígur sem voru bornar. Það hefur aldrei gengið svona fljótt að dæma kvígur enda sjaldan sem þrír ráðunautar gera það í einu. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þær dæmdust en ég held alla vega að Hjartalína 232 Úðadóttir hafi fengið yfir 85 stig.

Svo er komin ný haugsuga hér á bæ. Þetta er Red rock haugsuga, 7300 l og virkar hún vel. Hin haugsugan er einungis 2000 l og því munar miklu að taka út núna.

Veður er ágætt þessa stundina. Allan snjó hefur leyst og er logn og sól á daginn og hiti yfir frostmarki, en á nóttunni er frost á jörðu.

Ég man ekki eftir fleiru þannig að þetta verður að duga.

Kveðja, Hafþór


» 18 hafa sagt sína skoðun

25.10.2010 22:52:16 / Breiðilækur

Kvígur, kvígur og aftur kvígur


Þá eru víst komnir rúmir tveir mánuðir síðan ég skrifaði inn seinast og því kominn tími til að setja eitthvað inn.

Það hafa tíu kýr borið síðustu tvo mánuði og hafa komið níu lifandi kvígur og eitt dautt naut. Það er ekki eðlilegt hvað fæðast margar kvígur hér, en núna eru til 35 kvígur í uppeldi og það er langtum meira en þarf til viðhalds á kúnum. En þetta eru þær sem hafa borið:
Leista 163 Þverteinsdóttir bar 31. ágúst og átti rauða kvígu undan Lykli 02003 og fékk hún nafnið Skrá 273.
Flaska 221 (1. kálfs kvíga) Laskadóttir bar 10. september og átti rauða kvígu undan Guma 228 Laskasyni og fékk sú nafnið Brúða 274.
Slóð 189 Stígsdóttir bar 14. september og átti rauða kvígu undan Stakk 07059 og fékk hún nafnið Staka 275.
Gata 186 Stígsdóttir bar 17. september og átti dauðan nautkálf undan Síríusi 02032.
Gára 225 (1. kálfs kv.) Bifursdóttir bar 20. september og átti rauðhúfótta, leistótta kvígu undan Höldi 08010 og fékk sú nafnið Hvítkolla 276.
Glóra 196 Þrumaradóttir bar 30. september og átti rauða kvígu undan Keip 07054 og heitir sú Krulla 277.
Rita 204 Stílsdóttir bar 9. sktóber og átti rauða kvígu undan Villingi 01036 og fékk hún nafnið Villimey 278.
Lífgjöf 233 (1. kálfs kv.) Sporadóttir (heimanaut undan Meitli 98008 ) bar 19. október og átti rauða kvígu undan heimanautinu Guma 228 Laskasyni og heitir sú Jata 279.
Hátign 188 Soldánsdóttir bar svo í nótt og átti brandsokkótta kvígu undan Ás 02048 og heitir hún Æsa 280.
Bót 220 (1. kálfs kv.) Bútsdóttir bar svo í dag og átti svartsokkótta kvígu undan heimanautinu Bala 235 Halasyni og heitir sú Karfa 281.

Svo hafa farið 6 gripir í sláturhús, fjórar kýr og tvö naut. Í september fóru Snerpa 111 Völsungsdóttir vegna júgurbólgu, Buska 133 Hamarsdóttir (heimanaut) vegna lélegra afurða, fallþunginn af henni var tæp 250 kg, og tvö naut. Á föstudaginn var fóru svo Bára 183 og Blaka 187 Glannadætur, Bára vegna lélegra afurða og Blaka vegna þess að hún var alltaf með stálma í júgranu og var lek.

Þær kýr sem eru að mjólka mest núna eru Gata 186 Stígsdóttir og Leista 163 Þverteinsdóttir og eru í um 27 kg á dag. Af kvígunum er Flaska 221 Laskadóttir að mjólka mest eða um 21 kg á dag.

Ég setti inn myndir af nokkrum af þeim kálfum sem hafa fæðst og einnig myndir af kvígunum sem báru fyrst.

Búið er að slátra því sem á að slátra af kindunum, en það voru 15 lömb, veturgamli hrúturinn Garpur (vegna þess hve hann var styggur) og Nótt en hún var orðin átta vetra og frekar rýr. Ég setti á tvær gimbrar, önnur undan Golu 07-003 og er hvít að lit, en hin undan Móferu 08-004 og er svört. Þá hvítu el ég vegna þess hve hún er væn, en hún er 47 kg þrílembingur með 30 mm ómvöðva,  4 í lögun, 8,5 frampart og 17,5 læri. Þessi svarta kom ekki eins vel út úr ómskoðun en er alin vegna þess hve gæf hún er. Svo er ég kominn með nýjan hrút en sá er mjallahvítur að lit og hyrndur og kemur frá Ytri-Múla hér í sveit og er undan hvítum hrút og grárri á. Ekki er komið nafn á hann né gimbrarnar tvær. Í vetur verða því tólf kindur í fjárhúsunum og einni færra en síðasta vetur.

Tíðafar hefur verið óvenju gott í haust og var heyjað langt fram í september, en í ár heyjaðist meira en nokkurn tíma áður og vel rúmum 200 rúllum meira en í fyrra.

Ætli ég láti þetta ekki duga að sinni þó það sé örugglega hellingur sem ég gæti bætt við.

Hafþór


» 20 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 23:59:20 / Breiðilækur

Fyrsta kvígan borin

Þá er fyrsta kvígan borin og var það Týra 222 Náttfaradóttir 00035 sem gerði það. Hún bar 12 dögum fyrir tal þann 18. ágúst og átti nautkálf undan Keip 07054. Nautkálfurinn er svartur að lit og hefur fengið nafnið Týr 272 og er komin mynd af honum inn hér til hliðar. Týra er með mjög góða júgurgerð en reyndar er júgrað fremur lítið. Spenagerð er einnig mjög góð. Mjaltir og skap eru einnig með ágætum en það á að vísu eftir að koma betur í ljós þegar lengra er liðið frá burði.

Seinnisláttur er nú í fullum gangi og hefur heyjast alveg ótrúlega vel og mun betur en í fyrra.

En það var ekki fleira

Hafþór


» 18 hafa sagt sína skoðun

17.08.2010 23:41:20 / Breiðilækur

Burður

Þá er fyrsta kýrin borin á þessu hausti og sú fyrsta í fimm mánuði. Í gær bar Snerpa 111 Völsungsdóttir kvígu undan Laufási 08003. Kvígan hefur fengið nafnið Orka 271 og er bröndótt að lit. Mynd af henni má sjá í möppunni Kálfar haustið 2010. Snerpa fékk doða eftir burðinn og það gekk frekar illa að fá hana til að standa upp en hún stóð þó upp að lokum eftir tvo kalkskammta. Þetta verður seinasti kálfurinn hennar Snerpu því hún er með fleiri en einn ónýtan spena auk þess sem hún er orðin síðjúgra og mjög seinmjalta.

» 20 hafa sagt sína skoðun

15.08.2010 23:32:49 / Breiðilækur

Blogg

Þá er maður kominn aftur til baka frá Noregi og var mjög gaman að vera þar og gott að fá smá frí. Ég setti inn nokkrar myndir úr ferðinni og það er best að skoða þær því þær segja miklu meira en ef ég færi að skrifa eitthvað hér inn.

Nú er elsta kýrin á bænum, hún Skrúfa 81 Hakadóttir 88021, fallin og var hún felld 3. ágúst. Hún var fædd 18. febrúar 1998 og var því tæplega tólf og hálfs árs gömul. Hún bar fyrst haustið 2000 og eignaðist 10 kálfa, 7 naut og 3 kvígur. Fyrstu árin mjólkaði hún ekkert sérstaklega mikið en mjólkin jókst í henni með árunum og undanfarin ár hafði hún mjólkað um 7000 lítra á ári. Skrúfa fór vegna þess að hún var með tvo ónýta spena vegna júgurbólgu. Með Skrúfu fór Hjálma 219 Grímsdóttir 06257 vegna hárrar frumutölu en hún var tíu árum yngri en Skrúfa.

Það er ekki oft sem kýr ná þessum aldri hér en seinast gerðist það fyrir 11 árum en þá fór Gullbrá 34 Þistilsdóttir 84013, móðir Barða 98016, og var hún einnig tólf og hálfs árs. Frá því að skýrsluhald hófst hér á bæ hafa elstu kýrnar orðið 14 ára og voru það mæðgurnar Stóra-Hryggja 5 og Litla-Hryggja 13 en þær voru fæddar 1976 og 78.

Það hefur rignt alveg óhemju undanfarna daga og allur gróður tekið við sér og meira að segja brunnu slétturnar hafa grænkað en það verður svo að koma í ljós hvort hægt verði að slá þær í haust. Þó maður hafi beðið lengi eftir rigningu fer þetta að verða komið gott í bili því það þyrfti að fara að slá nýræktir.

En þetta er komið nóg núna

Kveðja, Hafþór


» 21 hafa sagt sína skoðun

31.07.2010 15:44:01 / Breiðilækur

Blogg


Það er best að koma hér með smá blogg því það er orðið svo langt síðan ég skrifaði inn síðast.

Fyrrislætti er lokið og lauk honum eitthvað eftir miðjan júlí og búið er að keyra öllum rúllum heim. Það komu aðeins fleiri rúllur en í fyrra og var það eins gott því það lítur mjög illa út með háarsprettu vegna þurrka. Túnin eru mörg hver mjög illa brunnin og það sem er ekki brunnið er hætt að vaxa. Það eru helst nýræktirnar sem voru slegnar fyrst sem virðast ætla að spretta eitthvað. Það hefur verið spáð einhverri rigningu undanfarið en ekki hefur hún komið, einungis hafa komið örfáir dropar sem gera lítið gagn.

Verið að hreinsa af kúastykkinu með nýjustu tækni

Verið að múga með nýjustu tækni á farmal cub '52 módel.

Brunnið tún

Gamla sléttan illa brunnin.


Af kúnum er helst lítið að frétta. Að vísu er lítil mjólk í þeim því nokkrar eru að geldast eða eru geldar og einnig er ekkert verið að gefa mikinn fóðurbæti þar sem kvótinn mun klárast löngu fyrir áramót. Ég byrjaði að beita fóðurkálið áðan en það hefur nærri alveg hætt að vaxa í þurrkunum og er vart nægilega sprottið.

Svo er stefnan sett á Noreg á morgun í vikufrí.

Ég læt þetta duga núna

Hafþór


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.06.2010 11:34:16 / Breiðilækur

Kúamyndir og fl.


Ég tók myndir af kúnum í gær og setti hér inn og má finna þær undir heitinu Kýr sumarið 2010.

Svo eru útlitsdómarnir á kvígunum komnir og dæmdust þær bara ágætlega. Einungis ein var með undir 80 stig en það var Glóra 196 Þrumaradóttir 04015 með 79 stig. Hæst dæmda kvígan var Framtíð 224 Framadóttir 05034 með 87 stig. Rita 204 Stílsdóttir og Hviða 215 Náttfaradóttir voru með 85 stig, Blesa 213 Þollsdóttir og Plata 210 Grímsdóttir með 82 stig og síðan voru Hersing 214 Hersisdóttir, Kilja 218 Júdasardóttir og Hjálma 219 Grímsdóttir með 80 stig.

Af kindunum er það að frétta að Móra 07-001, sem missti lömbin sín, tók við gimbrunum tveimur sem Mófera 08-004 drapst frá. Hún er alveg orðin sátt við þær og eltir ef þær hlaupa í burtu og leyfir þeim að sjúga sig. Þannig að það tókst að venja mánaðargömul lömb undir kind sem hafði verið lamblaus í fjóra daga, alveg merkilegt og algjört lán í óláni.

Svo var sleginn rúmur hektari af vallarfoxgrasi 16. júní og rúllað daginn eftir og fengust af því 24 rúllur sem verður að teljast ágætt.

En það var ekki fleira

Hafþór


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2010 23:54:40 / Breiðilækur

Sauðburði lokið, kýrnar út og sláttur hafinn


Sauðburði er lokið og lauk honum í gærmorgun þegar Tá 05-002 bar einum hrút. Seinni hluti sauðburðarins hefur gengið afar illa í vor eftir að hafa gengið vonum framar í byrjun. Eftir að sú fyrsta bar 5. maí báru sex kindur fram að 16. maí og báru þær allar sínum lömbum sjálfar og öll voru lifandi og spræk og allt gekk vel. Svo bar ein 25. maí og þurfti aðeins að hjálpa henni og svo bar Móra 07-001 daginn eftir og þá byrjaði allt að ganga illa. Fyrra lambið hennar, stór gimbur, kom afturábak og var lifandi en drapst svo eftir tuttugu mínútur og seinna lambið kom dautt út þannig að hún hafði ekkert lamb. Seinast fæddist dautt lamb árið 2006 og svo koma bara tvö í röð eftir svona mörg ár, alveg agalegt. Reynt var að venja undir hana en það gekk ekki því hún er afskaplega skapmikil kind og leyfir ekki lömbum að sjúga sig átakalaust. Svo bar Nótt 02-002 28. maí og kom með einn hrút og var það svo sem ágætt þar sem hún er orðin gömul og myndi varla ráða við tvö.
Sú sem bar fyrst í vor, hún Mófera drapst svo 30. maí frá gimbrunum sínum. Líklegast hefur hún drepist úr kalkskorti en þó er það ekki alveg víst. Gimbrarnar voru teknar inn og hef ég látið þær drekka úr Móru með því að halda henni en hún lætur mjög illa á meðan en hún er þó óðum að venjast þeim, vona ég. Gimbrarnar eru reyndar orðnar mjög stórar og duglegar að éta og því ættu þær ekki að þurfa mjólk mikið lengur.
Þannig að í sauðburðinum eru tvö lömb og kind dauð og langt síðan gengið hefur svona illa.

Allar fullorðnu kindurnar hafa verið tvílembdar utan þrjár. Nótt og Tá voru einlembdar eins og áður hefur komið fram og svo var Gola 07-003 þrílembd. Eitt lamba hennar var svartgolsótt, annað hvítt og það þriðja svart en það var agnarsmár hrútur sem hefur braggast ágætlega en fær þó minna en systkini sín sem eru stór og frek. Gemlingurinn Kyssifrú var einlembd. Lömbin urðu tuttugu í allt, tíu gimbrar og tíu hrútar, og ekki er litafjölbreytni mikil í ár, þrettán eru hvít, fimm eru svört og tvö svartgolsótt.

Ég fór á vísindadagana á Hvanneyri sem stóðu frá 17. til 20. maí og voru þeir frábærir í alla staði. Dagskráin var þétt frá morgni til kvöld og margt skoðað og gert. Svo eitthvað sé nefnt þá var farið í bjargsig, sauðfjárbúið að Hesti skoðað, farið í skógræktarferð í Skorradal, farið í fjós, í reiðtúr, ORF líftækni, metan og margt margt fleira. Við vorum sautján frá sjö skólum og var þetta bara mjög skemmtilegt og fræðandi. Svo var birt mynd af okkur í Bændablaðið sem tekin var fyrir utan Hest og er ég þar vinstra megin á myndinni með lokuð augun, og í textanum með myndinni er betur farið yfir hvað var gert.

Friðrik kom að skoða kvígurnar 26. maí og voru skoðaðar níu kvígur. Honum leist bara almennt vel á þær flestar held ég en best á Ritu 204 Stílsdóttur 04041 og Framtíði 224 Framadóttur 05034 enda eru þær bestu kvígurnar sem hafa borið í vetur. Svo er bara að bíða eftir dómunum og sjá hvernig þær hafa í raun dæmst. Það báru tíu kvígur í haust og vetur og fá átta þeirra að bera aftur en Lóð 209 Grímsdóttir 06257 fór í mars vegna júgurbólgu og skapgalla og síðan fer Hjálma 219, samfeðra Lóð, í haust vegna hárrar frumutölu og breytilegs skaps. Þannig að heimanautið Grímur Hersissonur 97033 er ekki alveg að gera sig en þó er þriðja kvígan undan honum, Plata 210, ágætis gripur.

Kýrnar fóru út í fyrsta skipti í gær og svo fóru þær aftur út í dag eftir kvöldmjaltirnar. Þær eru að vonum ánægðar með að vera komnar út og slettu vel úr klaufum en þó ekki eins og þegar þær fóru út úr gamla fjósinu hér áður eftir að hafa verið bundnar inni á básum yfir veturinn. Svo voru látnir fjórtán kálfar út um daginn og eru þá í allt komnir 24 út. Enn eru tíu kálfar inni sem mættu fara út í sumar en samtals eru átján gripir inni.

Sláttur hófst í dag þegar sleginn var tæpur hektari af óábornu vallarfoxgrasi og var þetta rúllað strax og komu átta rúllur af því. Þetta var nýrækt sem sáð var í árið 2007 en þó hafa kýrnar ekki étið af þessu, en þó helst ef það er slegið og gefið án þess að þurrka það. Svo er meiningin að plægja þetta upp og setja einært í til að drepa gamla grasið sem hafði náð að vaxa upp úr vallarfoxgrasinu og kýrnar éta ekki.

Nú er bara að bíða eftir að það rigni allvel því allt er orðið svo þurrt, en þó hefur náttfallið bjargað miklu undanfarið.

En ég læt þetta duga í bili

Hafþór


» 30 hafa sagt sína skoðun

06.05.2010 00:33:01 / Breiðilækur

Sauðburður hafinn


Sauðburður hófst í morgun þegar Mófera 08-004 bar og átti tvær gimbrar. Önnur er hvít að lit en hin svört. Faðir gimbranna er svo Garpur 09-257. Mófera var bara borin þegar komið var út í fjárhúsin og lömbin komin á spena og hefur þetta því gengið vel hjá henni. Meðfylgjandi mynd er svo af gimbrunum.



kveðja, Hafþór


» 24 hafa sagt sína skoðun

04.04.2010 14:21:59 / Breiðilækur

Kúablogg

Góðan daginn

Það hefur ein borið síðan síðast og var það Blaka 187 Glannadóttir 98026 sem bar 18. mars. Hún átti rauða kvígu undan Legi 07047 og fékk hún nafnið Kvika 270 í tilefni eldgossins í Fimmvörðuhálsi. Júgrað á Blöku er alveg svakalegt og bjóst maður alveg við því vegna þess að allt fyrsta mjaltaskeiðið var hún með stálma í júgranu sem jókst bara eftir því sem leið á. Og ekki hvarf stálminn í geldstöðunni og er það núna þannig að það sogar í tækinu í mjöltum því spenarnir eru svo litlir og stálminn mikill.

Hún Blaka er síðasta kýrin sem ber þennan veturinn og það er ekki fyrr en um miðjan ágúst sem næsta á að bera en þá kemur Snerpa 111 Völsungsdóttir 94006 með kálf undan Laufási 08003. Þannig að nú er bara frí frá burðum í næstum fimm mánuði. Frá því í júlí hafa fæðst 26 kálfar og voru kvígur í miklum meirihluta eða 17 talsins. Tveir kálfar fæddust dauðir, einn af hvoru kyni, þannig að það voru settar á 16 kvígur og því er ljóst að það verður mikil endurnýjun í fjósinu næstu árin. Af þessum átta lifandi nautkálfum þá er ekki einn nothæfur sem heimanaut og því er ljóst að fyrir haustið þarf að fá nautkálf að til að nota á kvígurnar. Ef ég tel upp litina á kálfunum fyrir þá sem hafa gaman af því þá var rauður grunnlitur algengastur en sautján kálfar báru þann lit, sex voru bröndóttir, tveir svartir og einn dökkkolóttur.

Það hefur einnig fækkað í fjósinu því loksins kom bíll að sækja gripi eftir þriggja mánaða bið þann 18. mars. Það fóru sjö kýr og eitt naut og voru gripirnir eftirfarandi:
Á 138 Lóadóttir 01008. Hún fór vegna júgurbólgu og voru bara tveir spenar nothæfir í lokin. Hún var líka alltaf veik fyrir súrdoða og var frekar stressuð.
Lína 167 Kubbsdóttir 97030. Hún lofaði mjög góðu í byrjun mjaltaskeiðs og mjólkaði helling en fékk svo júgurbólgu í tvo spena í janúar og lagaðist ekki.
Strompa 172 Veltingsdóttir hn. Hún fór vegna spenastigs.
Slétta 177 Túnadóttir 95024. Hún fór vegna spenastigs og svo var hún líka súrdoðakýr.
Selja 181 Vængsdóttir 03021. Hún var nú bara algerlega ónýt eftir júgurbólgu og það var bara einn speni nothæfur áður en hún fór.
Dimma 190 Leiknisdóttir 03028. Hún fór vegna júgurbólgu og spenagalla.
Lóð 209 Grímsdóttir hn. Hún fór vegna júgurbólgu og skapgalla.
Svo fór heimanautið Gumi 228 Laskason 00010 en hann var nú bara eins og hálfs árs og fór vegna leiðinlegra og mjög svo stórra hnýfla. Hann var einnig lélegur við að stökkva rétt og mun eignast í mesta lagi þrjá kálfa.

Þar sem við náðum ekki að losna við kýrnar fyrr þá vorum við með 28 kýr um tíma og kvótinn minnkaði óhemju. Og það er ljóst að hann verður löngu búinn fyrir áramót og það er varla gerlegt að kaupa meiri kvóta því hann hefur hækkað mikið í verði. Þannig að við þurfum örugglega að losna við enn fleiri kýr í sumar.

En þetta er komið nóg í bili

Kveðja, Hafþór


» 22 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 41403